17.12.1975
Efri deild: 31. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 1298 í B-deild Alþingistíðinda. (955)

118. mál, ráðstafanir til að draga úr áhrifum olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég hef því miður ekki handbærar upplýsingar um hvernig þessum 315 millj. sem gert er ráð fyrir að fari til Orkusjóðs á yfirstandandi tímabili, hefur verið ráðstafað. Ég hef ekki sundurliðun á því. En ég skal að sjálfsögðu reyna að sjá til þess að n., sem fær frv. til meðferðar, fái upplýsingar um það. Eins og ég sagði, þá hefur n., sem fær frv. til meðferðar, rúman tíma til að athuga það, og ég hef auðvitað ekkert við það að athuga að hún skoði það frá ýmsum hliðum.