17.12.1976
Efri deild: 25. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1407 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)

127. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég var einn þeirra nm. sem undirrituðu nál. félmn. sem útbýtt var hér í gær varðandi frv. til l. um tekjustofna sveitarfélaga og undirrituðu það með fyrirvara. Fyrirvari minn var einungis í því fólginn að framkalla skýr og ákveðin svör um það sem nú hefur birst í brtt. hæstv. félmrh., um heimild sem menn gátu getið sér til að hægt væri að nota til álagningar á hálfbyggð hús á næsta ári og að sú heimild yrði ekki notuð. Tel ég brtt. hæstv. ráðh. fullnægja þeim óskum er ég lagði áherslu á, og mun því greiða frv. eða öllum greinum þess mitt atkvæði.