18.12.1976
Sameinað þing: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)
112. mál, landhelgismál
Utanrrh. (Einar Ágústsson) :
Herra forseti. Ég tel mér að sjálfsögðu skylt að ganga til spurninga hjá hv. 5, þm. Vestf. eins og jafnan þegar hann beinir til mín fyrirspurnum, og ég get upplýst hann um það, að íslendingar hafa ekkert tilboð gert og þeir hafa einungis hlustað á það sem Efnahagsbandalagið hefur að segja. Þessi fyrirmæli fékk formaður sendinefndarinnar, Tómas Tómasson, frá mér, og ég ber fyllsta traust til þess að hann hafi farið eftir þeim.
Það er rétt, að Efnahagsbandalagið mun hafa lagt fram sínar hugmyndir. Ég veit ekki enn hverjar þær eru. Sendinefndin er ekki komin heim, hún kemur heim á þriðjudag. Ég tel mig hafa fullt umboð ríkisstj. til þess að lýsa því yfir, að þegar þessi tilboð hafi borist, þá verði þau kynnt ekki aðeins stjórnmálaflokkum, heldur einnig öllum þm. í utanrmn. eða landhelgisnefnd eða hvorri tveggja, ef menn vilja. En hitt get ég endurtekið, sem ég hef oft sagt hér áður, að ekkert verður aðhafst í þessu máli fyrr en þing kemur saman að nýju.