18.12.1976
Sameinað þing: 35. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1053)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Út af því, sem hv. 8. landsk. þm. beindi til mín varðandi fyrirspurn um Kröflu, að henni væri ólokið enn að nokkru leyti, þá er það alveg rétt, það eru nokkrir á mælendaskrá. En ég treysti mér ekki til að verða við bón hans um að taka þetta mál fyrir að þessu sinni, en vonandi gefst tækifæri til þess síðar.