21.12.1976
Efri deild: 37. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)

Þingfrestun

Eggert G. Þorsteinsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér fyrir hönd okkar þdm. að þakka hæstv. forseta góðar óskir í garð okkar þdm. allra og fjölskyldna okkar um gleðilega hátíð og farsælt komandi ár. Ég vil jafnframt leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir góða og sanngjarna fundarstjórn það sem af er þessu þingi og óska honum og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og góðs og farsæls komandi árs og bið hv. þdm. að taka undir þessar óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]