21.12.1976
Sameinað þing: 38. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1588 í B-deild Alþingistíðinda. (1277)

Þingfrestun

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Þetta er síðasti fundur sem verður haldinn í Sþ. nú fyrir jól. Því vil ég þakka hæstv. ríkisstj. og hv. alþm. fyrir gott samstarf í vetur og umburðarlyndi í minn garð. Varaforsetum, skrifurum, skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis þakka ég ágæt þjónustustörf. Jafnframt óska ég hv. alþm. og fjölskyldum þeirra og öllu starfsfólki Alþingis gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Utanbæjarþm. óska ég góðrar ferðar og ánægjulegrar heimkomu og ég vona að við megum öll heil hittast hér á Alþ. hinn 24. jan. n. k.