31.01.1977
Neðri deild: 43. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1741 í B-deild Alþingistíðinda. (1386)
Umræður utan dagskrár
Friðjón Þórðarson:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að blanda mér í efnisumr. um málið því að skýringar hafa nú verið gefnar allmiklar, en það er aðeins af því að ég heyrði á máli hv. 3. þm. Norðurl. e. að hann taldi að tiltekin mjólkurbúð yrði lögð niður eða hefði verið lögð niður (á Hrísateigi 19), en eftir þeim upplýsingum, sem ég fékk af tilviljun í gær, var mér tjáð að kaupmaður þar í nágrenninu hefði keypt þá mjólkurbúð og yrði hún rekin a. m. k. fyrst um sinn með óbreyttu fyrirkomulagi og verið hefur lengi.