07.02.1977
Efri deild: 41. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1845 í B-deild Alþingistíðinda. (1462)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson) :

Mér hefur borist eftirfarandi bréf :

„Reykjavík, 3. febr. 1977.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ólafur Þ. Þórðarson skólastjóri, taki á meðan sæti mitt á Alþingi.

Steingrímur Hermannsson,

2. þm. Vestf.“

Ólafur Þ. Þórðarson hefur setið áður á þingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.