08.02.1977
Sameinað þing: 48. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)
155. mál, fiskveiðiheimildir Íslendinga og Færeyinga
Frsm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Utanrmn. hefur fjallað um till. til þál. um staðfestingu á niðurstöðu viðræðna um gagnkvæmar fiskveiðiheimildir íslendinga og færeyinga. Niðurstaðan er þess efnis eða felur í sér heimildir annars vegar íslendinga til kolmunnaveiða innan fiskveiðimarka Færeyja og hins vegar færeyinga til loðnuveiða við Ísland og er undirrituð hinn 4. febr. s. l. Einnig telja þessir aðilar æskilegt að stofnað verði til samvinnu um rannsóknir á göngu kolmunna á svæðinu milli Íslands og Færeyja.
Nm. urðu sammála um að mæla með samþykkt þessarar till. Á hinn bóginn greindi þá nokkuð á um nánari rökstuðning fyrir afstöðu til málsins. Sú skoðun kom fram, að líta bæri einkum á hin efnislegu rök, ef svo má segja, þ. e. að loðnan væri sá fiskstofn á Íslandsmiðum sem ekki væri fullnýttur af íslendingum nú, þeir væru aflögufærir að þessu leyti að áliti fiskifræðinga við Hafrannsóknastofnunina, enda hefði sú stofnun að sjálfsögðu fengið þessa till. til athugunar og umsagnar. Í annan stað var talið að leggja bæri höfuðáherslu á að færeyingar væru frændur okkar, nágrannar og vinir. Þeir ættu allra þjóða mest undir fiskveiðum komið. Þar sem mikið magn væri af loðnu við Íslandsstrendur um þessar mundir væri sjálfsagt að miðla færeyingum af því magni, einkum þar sem íslendingar fengju á móti heimild til kolmunnaveiða innan fiskveiðimarka Færeyja.
Hvort sem þessi rök voru rædd lengur eða skemur, urðu nm. sammála um að mæla með till. Einn nm., Jóhann Hafstein, hv. 6. þm. Reykv., var fjarstaddur. Samkvæmt þessu leggur n. einróma til að till. þessi verði samþykkt.