15.02.1977
Sameinað þing: 51. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2082 í B-deild Alþingistíðinda. (1554)

103. mál, brúargerð yfir Eyjafjarðará

Fyrirspyrjandi (Lárus Jónsson) :

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja hér á þskj. 115 fsp. til samgrh. um hagkvæmni brúargerðar yfir Eyjafjarðará. Alþ. samþ. á sínum tíma þál. um þetta mál 18. maí 1976 og gerði ég þá grein, þegar þetta mál var flutt, fyrir því hvað fælist í þessari þáltill.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta nú, en vænti svara hæstv. ráðh.