28.02.1977
Efri deild: 46. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2317 í B-deild Alþingistíðinda. (1702)

144. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Halldór Ásgrímsson:

Herra forseti. Það var aðeins út af þessari fyrirspurn hv. þm. Helga F. Seljan. Það kom ekkert fram í störfum n. sem benti til að þessum reglum yrði breytt, og ég hef ekki heyrt um það getið fyrr. Sá starfsmaður, sem hefur með þessi mál að gera í viðskrn., kom á fund n., við kölluðum hann fyrir, og það kom ekkert fram í máli hans sem benti til að þessum reglum yrði breytt. Að öðru leyti treysti ég mér ekki til að segja neitt um það. Þetta kemur mér alveg á óvart, og ég hef ekki heyrt um það fyrr en nú.