01.03.1977
Sameinað þing: 57. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2354 í B-deild Alþingistíðinda. (1743)
261. mál, rannsóknir á mengun í álverinu í Straumsvík
Fyrirspyrjandi (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Á þskj. 334 hef ég borið fram svofellda fyrirspurn til heilbrrh. um rannsóknir á mengun í álverinu í Straumsvík:
„1) Hefur farið fram rannsókn á mengun innan veggja álversins í Straumsvík eða öðrum atriðum, sem kunna að vera hættulegar heilsu starfsmanna?
2) Hefur Heilbrigðiseftirlit ríkisins látið í ljós álit sitt á starfsumhverfi innan veggja álversins og heilsugæslu þar?“
Það hefur ekki farið fram hjá mönnum undanfarna daga, að rætt hefur verið um að koma upp hreinsitækjum í álverinu, að því er manni virðist eingöngu gagnvart ytra umhverfi. Hafa verið um þetta miklar og harðar umr. bæði hér á Alþ. og utan Alþ. En ég hef ekki orðið var við að sérstakar umr. færu fram um það, hvernig þessi mál standi innan veggja álversins sjálfs, og ég tel síst verra að eyða tíma í að ræða þessi atriði, sérstaklega varðandi heilsugæsluskilyrði og vinnuskilyrði öll í samræmi við þær aðstæður sem þar ríkja.
Við alþfl.-menn höfum lagt fram till. til þál. um vinnuvernd og starfsumhverfi. Í grg. með henni leggjum við sérstaka áherslu á að þetta mál allt, starfsumhverfi og vinnuskilyrði, verði sérstaklega rannsakað. Nú eru mörg ný starfssvið á Íslandi, og vinnustaðir, sem ekki eru beinlínis hættulegir, geta til lengdar valdið streitu og þar verið efnavinnsla sem kann að vera heilsuspillandi þegar til lengdar lætur. Hér er því sannarlega um mikið verkefni að ræða og þarf að hefjast handa strax. Ég vildi gjarnan fá að vita með hvaða hætti hefur verið staðið að þessum þætti innan veggja álversins.