08.03.1977
Sameinað þing: 60. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)

257. mál, endurskoðun á lögum um hlutafélög

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Á vegum viðskrn. hefur verið unnið að endurskoðun laga um hlutafélög. Sú endurskoðun hefur leitt til þess, að samið hefur verið frv. til nýrra hlutafélagalaga. Þetta verk hefur staðið yfir alllengi, að því hafa sérstaklega unnið tveir menn, Benedikt Sigurjónsson hæstaréttardómari og Gylfi Knudsen fulltrúi í viðskrn. Þeir hafa fyrir nokkru gengið frá frv. um þetta efni, frv. til heildarlaga um hlutafélög. Frv. er nú í prentun. Ég vænti þess, að það verði lagt fyrir Alþ. alveg á næstunni.