21.03.1977
Neðri deild: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2690 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)

Umræður utan dagskrár

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :

Herra forseti. Hér var sagt áðan eftir einhverri heimild að einhver aðili hefði haft samband við Landhelgisgæsluna um þetta. Ég er að sjálfsögðu ekki við því búinn alveg að segja ákveðið um þetta nema láta fara fram rannsókn á því. Hitt vil ég þó segja strax, að forstjóri Landhelgisgæslunnar kannast ekki við það. Þetta vildi ég aðeins láta koma fram, jafnframt því sem ég áskil mér að koma að nánari upplýsingum síðar ef annað kemur fram.