23.03.1977
Neðri deild: 62. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2794 í B-deild Alþingistíðinda. (2070)
15. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ástæða þess, að ég kvaddi mér hér hljóðs, voru nokkur orð sem féllu í ræðu hv. 4. þm. Vesturl. hér áðan. Ég er ekki viss um hvort ég hafi heyrt rétt, en mér heyrðist hann segja að um brtt. þessar á l. nr. 81 frá 30. maí 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, ríkti samstaða. Ég vil taka fram að það er ekki alls kostar rétt. Það er ekki fyrir hendi samstaða í sjútvn. um annað en það að svara játandi tilmælum hæstv. sjútvrh. um að n. flytji málið. Um það var samkomulag í n. Hins vegar kemur það glögglega fram í grg. n. eða réttara sagt í nál., að nm. hafa raunar ekki tjáð sig um sjálft efni málsins. Það er ekki samstaða í n. um einstök efnisatriði. Hins vegar, eins og ég sagði áðan, fannst okkur nm. í sjútvn. raunar ekki stætt á því að neita tilmælum ráðh. um að n. flytti þetta mál. Og mér er nær að halda að það sé ekki aðeins ekki samstaða um efnisatriði meðal nm., heldur séu ákveðnir nm. algjörlega andvígir vissu efnisatriði í þessum brtt. En látum það liggja á milli hluta.
Ég vil einnig að það komi hér fram, að mér er ekki heldur kunnugt um að það sé samstaða innan Landssambands ísl. útvegsmanna um brtt. eins og þær liggja hér fyrir. Landssamband ísl. útvegsmanna sendi sjútvn. Nd. á sínum tíma bréf með beiðnum um ákveðnar leiðréttingar eða breytingar á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi. Forsvarsmenn L. Í. Ú. mættu á fundi sjútvn. og tóku þar mjög afdráttarlaust fram að það væri aðeins samstaða innan L. Í. Ú. ef allt það yrði gert sem í tillögum eða í samþykktum L. Í. Ú. fólst. Ef hins vegar yrði út af þeim samþykktum breytt í einhverjum atriðum, þá væri ekki lengur um málið samstaða innan Landssambandsins.
Þær brtt., sem hér eru fluttar að beiðni hæstv. ráðh., eru ekki algjörlega óbreyttar frá samþykktum L. Í. Ú., svo ef marka má yfirlýsingar forsvarsmanna L. Í. Ú., þá er það a. m. k. enn sem komið er óreynt með öllu hvort landssambandið fyrir sitt leyti fellst á þetta eða ekki. En það er heldur ekkert meginatriði í mínum huga hvort stjórn Landssambands ísl. útvegsmanna samþ. slíkt eða ekki. Alþ. getur að sjálfsögðu ekki látið einstök hagsmunasamtök beinlínis segja sér fyrir verkum, eins og ég tel að gerð hafi verið tilraun til með þessu bréfi Landssambandsins, því okkur var hreinlega sagt það, nm. í sjútvn. Nd., af formælendum L. Í. Ú. að annaðhvort yrðum við að gera eins og L. Í. Ú. ætlaðist til eða við værum vinsamlegast beðnir um að láta málið kyrrt liggja.
Ég vil aðeins taka það fram, að ég veit að þær skoðanir eru uppi í sjútvn., og ég er einn af þeim sem hafa þá skoðun, að ég tel að það eigi ekki aðeins að skoða samkomulagserindi frá L. Í. Ú., eins og gert hefur verið í þessu tilviki, heldur eigi einnig jafnhliða að athuga aðrar óskir sem fyrir liggja frá einstökum greinum fiskveiða og einstökum stöðum. Ég tel því að réttara hefði verið að n. hefði ekki aðeins fengið niðurstöður Landssambandsins, sem að eigin sögn þeirra landssambandsmanna var sáttaniðurstaða, heldur jafnframt öll þau erindi sem Landssambandið kann að hafa fjallað um, en ekki tekið upp í sína samþykkt. Ég tel að sjútvn. Nd. og Alþ. raunar allt sem slíkt eigi að skoða í einu lagi erindi frá öllum byggðarlögum og öllum greinum fiskveiða, m. a. till. sem ekki eru greindar á þskj. 392 né heldur í bréfi Landssambands ísl. útvegsmanna. Ég tel að þetta sé skoðun fleiri nm. í sjútvn. Nd. heldur en mín, og því hef ég síður en svo á móti því að þessu máli verði vísað til n. á nýjan leik, m. a. í þeirri von að það kunni fram að koma, annaðhvort hér í umr. að þessu sinni eða frá öðrum hagsmunaaðilum og byggðarlögum, þegar vitað er að þessar breytingar standa fyrir dyrum, þær óskir sem við vitum að þar eru á ferðinni um aðrar og frekari breytingar en hér er gert ráð fyrir. Hins vegar mun ég að sjálfsögðu ekki frekar en aðrir sjútvn.-menn láta neitt fyrir fram uppi um minn hug til þeirra beiðna, en ég tel eðlilegt að fjallað verði um þær allar í einu lagi, en ekki aðeins einhverjar niðurstöður sem stjórn L. Í. Ú. hefur orðið ásátt um að leggja til.