29.03.1977
Sameinað þing: 71. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2977 í B-deild Alþingistíðinda. (2158)
Umræður utan dagskrár
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umr. En það voru tvö atriði, sem komu fram í ræðu hv. 6. þm. Reykv., sem voru byggð á misskilningi um það að Búnaðarbankanum væri heimilt að setja upp útibú eftir geðþótta eða löngun. Hann verður eins og aðrir bankar að hlíta fyrirmælum Seðlabankans þar um og fær leyfi hans til þess að setja upp útibú. (Gripið fram í.) Jú, það verður hlutverk landbrh. að sækja á Seðlabankann með það, en hann getur ekki einn ráðið því. Hitt vil ég líka taka fram, að Búnaðarbankinn, svo stór sem hann er, lánar að sjálfsögðu mikið til atvinnuvega og viðskipta í landinu, ekki bara í sveitum landsins, heldur einnig í þéttbýli, og ber honum auðvitað skylda til þess sem alþjóðarbanka, sem hann og er.