19.04.1977
Sameinað þing: 76. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3300 í B-deild Alþingistíðinda. (2331)

266. mál, útgjöld vísitölufjölskyldunnar

Fyrirspyrjandi (Geir Gunnarsson):

Herra for­seti. Ég þakka hæstv. forsrh. svörin. Þau voru ítarleg og greinileg, eins og vænta mátti frá þeim aðila sem vann verkið. Þegar ég samdi upphaf­lega fsp. hafði ég í a-lið sett á blað aðflutnings­gjald, en á einhverju stigi málsins breyttist þetta í innflutningsgjald, sem er víðtækara. Þskj. var síðan prentað upp, og ég hafði samráð við hag­stofustjóra um þá leiðréttingu. Ég tel ekki grundvöll til þess að gera þessar upplýsingar að umræðuefni í fyrirspurnatíma, en ítreka þakkir mínar til hæstv. forsrh.