19.04.1977
Sameinað þing: 77. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3308 í B-deild Alþingistíðinda. (2344)

220. mál, skipulagsskrá fyrir Þjóðhátíðarsjóð

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég átti satt að segja ekki von á því að þessi till. kæmi svo fljótt til umr., en hún hefur greinilega notið forgangs fram yfir önnur mál sem á dagskrá eru á undan henni. Ég vil því mælast til þess, vegna þess að ég mun hafa nokkrar aths. við þetta mál að gera, hversu gott sem það er í sjálfu sér, — ég vil ælast til þess, vegna þess að ég er engan veginn undirbúin til þess að gera grein fyrir því máli mínu, sem þó verður ekki langt þegar að því kemur, að umr. verði frestað nú og málið tekið fyrir á næsta fundi Sþ., þó ekki ef það verður í dag.