22.04.1977
Efri deild: 61. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3478 í B-deild Alþingistíðinda. (2435)
165. mál, póst- og símamál
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Ég tek undir það, að hér er til umr. mjög mikilvægt mál. Þetta er ein af umfangsmestu stofnunum ríkisins og mikilvægt að skipa starfseminni þar sem best.
Ég kveð mér hins vegar fyrst og fremst hljóðs til þess að taka undir brtt. frá Oddi Ólafssyni, hv. þm. Sem formaður í milliþn. um byggðamál flutti ég ásamt öðrum nm. fyrir tveimur þingum, hygg ég, till. til þál. um jöfnun símagjalda. Hún hlaut einróma samþykki þá og síðan hefur miðað nokkuð í þá átt, en þó þykir ýmsum miða hægt. Meginatriði þeirrar till. voru þau að jafna símgjöld innan hvers númers eða númerasvæðis og að lækka símkostnað frá dreifbýli til miðstöðva stjórnsýslunnar í Reykjavík. Og það eru nákvæmlega þessi tvö atriði sem hv. þm. hefur tekið upp í brtt. sína. Ég mun því fylgja þessari brtt. Það er í samræmi við þann málflutning sem ég hef haft hér á hv. Alþ., og þarf raunar varla að hafa um það fleiri orð.
Við höfum margir fært rök fyrir því áður hve mikilvægt er að reyna að jafna símakostnað. M. a. kemur fram í athugun, sem Hagstofan hefur gert að undirlagi milliþn. um byggðamál og samkv. þáltill., sem samþ. var hér á hv. Alþ. að verulegur munur er á framfærslukostnaði í dreifbýli og réttbýli. Þó er þetta fyrst og fremst á fáum liðum framfærslukostnaðar og einn sá liður er símakostnaður þar sem töluverðu munar, enda munu allir þeir sem eitthvað þekkja til slíks kostnaðar í dreifbýli raunar ekki þurfa að leita til slíkrar athugunar. Þeir þekkja það af umr. við þá menn, sem þar búa, og þeim mikla símakostnaði sem því fylgir að hafa samband við ekki síst stjórnsýslumiðstöðvar ríkisins í Reykjavík, þm. sína og fjölmargt annað sem nefnt hefur verið.
Ég vil ekki fara að lengja þessa umr. með ítarlegri ræðu um þessi atriði. Þetta þekkjum við allir og læt ég nægja þessi örfáu orð um þennan þátt. Ég vil sem sagt lýsa ánægju minni með þessa brtt. og sérstaklega þá þætti brtt. sem ég hef nú drepið á.
Af því að ég er staðinn upp, þá vil ég nefna það, að ég flutti á hv. Alþ. fyrir tveimur þingum frv. til l. um breyt. á fjarskiptalögum, þar sem ég gerði ráð fyrir því að létt yrði nokkuð á einkarétti Pósts og síma til þess að annast viðhald fjarskiptatækja. Ég skoðaði þetta frv. þegar það var lagt fram og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri raunar þörf á að flytja slíka brtt. við þetta frv. Í 3. gr. þessa frv. er vísað í fjarskiptalögin. Það eru því þau sem þarf að skoða í þessu sambandi. Það er enn mín bjargfasta skoðun, að það sé rétt að létta af þessu einkaleyfi, bæði hefur það orðið ákaflega kostnaðarsamt fyrir Póst og síma að þurfa að standa við þennan einkarétt, senda t. d. menn til viðgerða á fjarskiptatækjum skipa. Oft hefur þetta einnig orðið til þess, að dráttur hefur orðið á nauðsynlegri viðgerðarþjónustu. Auk þess hefur á seinni árum fjölgað þeim mönnum hér á landi sem geta með ágætum sinnt slíkri viðhaldsþjónustu. Ég vildi láta nægja á þessu stigi að spyrja hv. frsm. n. um það, hvort þessi atriði hafi nokkuð borið á góma í umfjöllun n. um þetta mál, og jafnframt vil ég taka það fram, að ég mun reyna að fylgja eftir síðar þessari hugmynd minni um breytingu.