02.11.1976
Sameinað þing: 13. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í B-deild Alþingistíðinda. (266)

Umræður utan dagskrár

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Það er stundum gott að vita af segulbandinu sem er hér uppi á 2. hæð og tekur upp allt sem hér er sagt, og það skuli vera skráð fyrir framtíðina að rétt þegar vinstri hreyfing á Ísíandi gat staðið saman í einu máli, þá þurfti einn maður að standa upp til að skemmta skrattanum. Verði honum að góðu.