27.04.1977
Efri deild: 65. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3781 í B-deild Alþingistíðinda. (2694)

228. mál, sala hlutabréfa í Íslensku matvælamiðstöðinni hf.

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil fagna þessu frv. til l., sem hæstv. fjmrh. hefur nú talað fyrir, og lýsi mig samþykkan þessari till. En ég vil vona að hér sé um nýja stefnu­mörkun að ræða hjá ríkisstj. og gengið verði hreint og markvisst til verks og þátttaka ríkis­ins í atvinnurekstri, sem best er komin í hönd­um einkaaðila, taki enda sem fyrst.