27.04.1977
Neðri deild: 75. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3853 í B-deild Alþingistíðinda. (2782)

197. mál, skattfrelsi jarðstöðvar

Frsm. (Lárus Jónsson):

Virðulegi forseti. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. hefur haft til umfjöll­unar frv. til l. um skattfrelsi jarðstöðvar til fjarskiptasambands við umheiminn. N. mælir einróma með samþykkt þessa frv. Einn nm. skrifar undir með fyrirvara, hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason.

Frv. er komið frá Ed. og hæstv. fjmrh. mælti fyrir því hér í þessari hv. d. í dag, og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um það.