27.04.1977
Neðri deild: 75. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3853 í B-deild Alþingistíðinda. (2785)

227. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Fram. (Ólafur G. Einarsson):

Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta frv., frv. til 1. um breyt. á l. um kjarasamninga opinberra starfsmanna, og er álit n. á þskj. 556. N. mælir einróma með samþykkt frv., en það hefur áður verið samþykkt í hv. Ed.

Ég sé ekki ástæðu til að rekja efni frv. þar sem hæstv. fjmrh. gerði það fyrr í dag þegar hann mælti fyrir frv.