27.04.1977
Neðri deild: 75. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3853 í B-deild Alþingistíðinda. (2788)

211. mál, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

Frsm. (Eyjólfur H. Jónsson):

Hæstv. forseti. Fjh.- og viðskn. hefur rætt um þetta mál, og leggur hún einróma til að frv. verði samþ. Rita allir nm. undir nál., en einn þeirra, hv. þm. Lúðvík Jósepsson, með fyrirvara.