29.04.1977
Sameinað þing: 83. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3969 í B-deild Alþingistíðinda. (2942)

39. mál, virkjun Skaftár og Hverfisfljóts

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Allshn. hefur að undanförnu haft til athugunar till. til þál. um rannsókn á möguleikum til virkjunar Skaftár og Hverfisfljóts, en það er 39. mál þessa þings. Að þessari athugun lokinni hefur það orðið niðurstaðan í n. að hún leggur einróma til að till. verði samþykkt óbreytt.