29.04.1977
Efri deild: 76. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 3993 í B-deild Alþingistíðinda. (2975)

45. mál, umferðarlög

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. Ed. hefur á fundum sínum fjallað um frv. til 1. um breyt. á umferðarlögum, nr. 40 23. apríl 1968. Frv. þetta er flutt í Nd. og hefur verið samþ. þar og fjallar um breytingar á hámarksaksturshraða í þéttbýli. Allshn. varð sam­mála um að leggja til að frv. yrði samþ. breytt.