29.04.1977
Neðri deild: 79. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4002 í B-deild Alþingistíðinda. (3000)

230. mál, kjarasamningar starfsmanna banka

Frsm. (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. er sammála um að mæla með þessu frv., og er álit n. á þskj. 580. Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta mál. Hæstv. viðskrh. mælti fyrir frv. á fundi d. í gær og í máli hans komu fram öll efnisatriði þess.