02.05.1977
Efri deild: 83. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4095 í B-deild Alþingistíðinda. (3140)

236. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég vil með nokkrum orðum fylgja úr hlaði því frv. til l. um breyt. á tekju- og eignarskattslögum sem hér er til umr. Það langa nafn sem frv. ber, er ein vísbending um hversu tímabær er orðin setning nýrra laga um tekju- og eignarskatt, eins og reyndar frv. það til l. um tekju- og eignarskatt, sem verið hefur til meðferðar hér á Alþ. undanfarna mánuði, gerir ráð fyrir. Það var hins vegar í upphafi gerð grein fyrir því að gera yrði breytingar á núverandi skattalögum um tekju- og eignarskatt vegna skattlagningar í ár og flutt yrði sérstakt frv. þar að lútandi, svo sem nú er gert. Frv. hefur hann tilgang að koma í veg fyrir verulegar breytingar á skattbyrði vegna þess framreiknings á fasteignamati í landinu sem gildi tók í árslok 1976.

Efni þessara breytinga er útlistað í grg., en 1. gr. felur í sér þá takmörkun, að fyrning á fasteignamatsverði, sem heimil er samkv. 3. mgr.

B-liðar 15. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 60/1973, skuli miðast við fasteignamat eins og það var í upphafi árs og raunar var gildandi allt árið, en ekki eins og það var á síðasta degi ársins, eins og hefur verið orðað í lögum.

Í 2. gr. er á hinn bóginn gert ráð fyrir tvenns konar breytingu. Önnur er breyting á skatthlutfalli og skattstiga sem stendur í beinu sambandi við framreikning fasteignamatsins. Skattstigi einstaklinga, sem verið hefur 0.6% og 1%, verður nú einungis eitt þrep, 0.8%, samkv. frv., en skattur félaga, sem verið hefur 1.4% verður 0.8%. Skattskyldumörkum einstaklinga er hins vegar breytt verulega, þannig að í staðinn fyrir 2.7 millj. kr. skattfrjálsrar eignar, sem gilti á s. l. ári, en lögin gera ráð fyrir 1 millj., koma 6 millj. kr. fyrir einstakling, en 9 millj. fyrir hjón. Þetta er nýmæli þar eð skattfrjáls eign einstaklinga og hjóna hefur til þessa verið hin sama. Breyting þessi er í átt við þær till. um þetta efni sem gerðar eru í frv. því sem verið hefur til með­ferðar hér á hv. Alþ. að undanförnu. Eignar­skattshlutfall félaga miðast hins vegar eingöngu við þá hækkun grunnsins sem reiknað er af, enda er gert ráð fyrir að eignarskattsbyrði félaga verði jafnmikil og hún var, en eignarskatts­byrði einstaklinga lækki í heildarfjárhæð lítil­lega, en greiðendum eignarskatts mun fækka yfir 10 þús.

Að undanförnu hafa farið fram viðræður milli fulltrúa launþegasamtaka og ríkisins um leiðir sem vera kynnu færar til lækkunar tekjuskatts í tengslum við kjarasamningaumleitanir bær sem nú standa yfir. Í þessum umr. hefur einnig nokkuð verið fjallað um útsvarsálagningu, og hugsanlegt er að breyting á henni komi til greina sem liður í ráðstöfun í þessu sambandi. Fulltrúar launþega hafa gefið til kynna í höfuðatriðum þær leiðir sem launþegasamtökin telja félögum sínum koma einna helst að gagni við slíka lækkun skatta. Hins vegar hljóta skattbreytingar af þessu tagi að koma því aðeins til álita að samningar séu að taka innan þess ramma sem ætla mætti að hagkerfið þoli, miðað við hæga niður­færslu verðbólgustigsins og jöfnuð í viðskiptum við útlönd.

Þegar þetta frv. var flutt var ekki tímabært að leggja fyrir Alþ. till. í þessa átt. Enn hafa línur ekki skýrst í kjarasamningum, þannig að till. varðandi þær breytingar, sem þar hefur verið rætt um, eru ekki fyrir hendi. En verði svo áður en þingi lýkur nú í þessari vikur yrðu þá fluttar sem brtt. við það frv. sem hér er til umr. Dragist þetta hins vegar fram yfir þinglok verður að gera ráð fyrir að nauðsynlegar breytingar varðandi það samkomulag, sem næðist, yrðu gerðar með brbl. um breyt. á skattalögunum.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja um frv., en legg til, herra forseti, að því verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.