03.05.1977
Sameinað þing: 84. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4177 í B-deild Alþingistíðinda. (3242)

235. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra for­seti. Ég hef enga aths. að gera við ræðu hv. fyrirspyrjanda og tek undir þá skoðun hans með lán til íbúðarhúsa í sveitum, því að allir eiga rétt á því að hafa þak yfir höfuð sér. Það var aðeins út af því sem hann sagði um athugun á lausa­skuldum bænda, af því að það tókst svo til að ég var ekki við þegar það mál var rætt hér í hv. d., að ég hef þegar farið fram á það við sömu menn og unnu að þeim málum síðast að þeir taki að sér þessa athugun, en það þýðir náttúrlega ekki að úrlausnin sé fundin. — Ég vildi bara upplýsa þetta.