04.05.1977
Efri deild: 90. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4286 í B-deild Alþingistíðinda. (3358)

Starfslok efri deildar

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Þetta verður síðasti fundur hv. Ed. að þessu sinni, þar sem nú er ákveðið, eins og kunnugt er, að þinglausnir fari fram síðar í dag. Nú þegar fundum deildarinnar lýkur vil ég nota tækifærið til að þakka ykkur, hv. þdm., fyrir samveruna á þessu þingi, sem nú er að ljúka, og ánægjulega samvinnu. Ég vil þakka skrifurum d. fyrir ágætt starf og varaforsetum fyrir þá aðstoð sem þeir hafa veitt mér sem forseta. Skrifstofustjóra Al­þingis og öðru starfsliði Alþ. færi ég bestu þakkir fyrir ágæta samvinnu.

Nú þegar leiðir skilja óska ég öllum utanbæjarþm. góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu, og fjölskyldum ykkar og ykkur sjálf­um óska ég velfarnaðar. Ég vona að við hittumst allir heilir hér á komandi hausti þegar Alþ. kemur saman á ný.