04.05.1977
Neðri deild: 91. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4299 í B-deild Alþingistíðinda. (3384)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir):

Þar sem þetta er seinasti fundur þd. á þessu þingi vil ég færa hv. þdm. þakkir fyrir samstarfið á liðnum vetri. Sérstakar þakkir vil ég færa varaforsetum og skrifurum, skrifstofustjóra Alþingis svo og öllu starfsfólki þess fyrir góða aðstoð og greiða samvinnu. Ég óska þeim hv. þdm., sem um langan veg eiga heim að fara, góðrar ferðar og góðrar heimkomu, og þeim og fjölskyldum þeirra, starfsfólki þingsins og fjölskyldum þess góðs og gleðilegs sumars.