04.05.1977
Neðri deild: 91. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4300 í B-deild Alþingistíðinda. (3385)

Starfslok neðri deildar

Karvel Pálmason:

Hæstv. forseti. Fyrir hönd okkar þdm. vil ég þakka hæstv. forseta góðar óskir okkur til handa. Ég þakka forseta fundarstjórn og samstarf og óska honum og fjölskyldu hans alls hins besta á því sumri sem nú er nýgengið í garð. Ég þakka jafnframt skrifstofustjóra og öllu starfsfólki þingsins gott samstarf og óska því og fjölskyldum þess alls hins besta á komandi sumri. Ég vona að við megum öll hittast heil að hausti. Ég bið hv. þdm. að taka undir þessi orð með því að rísa úr sætum. — [Deildar­menn risu úr sætum.]