09.11.1976
Sameinað þing: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (339)
54. mál, sjóminjasafn
Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svar hans, enda þótt ég verði að segja að ég sé ekki alls kostar ánægður með það, að í rauninni hafi ekkert gerst í hans ágæta rn. síðan þessi skýrsla og þessar till. um framkvæmdir komu á borð hans fyrir hálfu öðru ári. Nú veit ég að þér er um stórt mál að ræða, en vil leggja alveg sérstaka áherslu á það, að á meðan beðið er eftir framkvæmdum í málinu, þá er ýmislegt hægt að gera og ýmislegt sem nauðsynlegt er að gera, og þá er þó fyrst og fremst varðveisla og viðhald þeirra sjóminja sem hægt er að bjarga, þeirra báta og skipa sem ástæða er til að bjarga og hægt er að bjarga. Eins og síðasti ræðumaður gat um, vinnur félag áhugamanna að þessu verkefni. En þetta verkefni er stórt og viðamikið og dýrt. Þjóðminjavörður vinnur einnig að þessu verkefni, það veit ég, og hefur áhuga á því. En báðir þessir aðilar hafa mjög þröng fjárráð. Ég hygg að á fjárl. nú séu aðeins 600 þús. kr. ætlaðar til þessa verkefnis, og þær duga naumast til þess að endursmíða illa farinn bát og sennilega alls ekki. Nú vil ég skora á hæstv. ráðh. að beita áhrifum sínum og láta velvilja sinn koma fram í því að fá þessa upphæð hækkaða þannig að það verði þó hægt að vinna sómasamlega að þessum þætti málsins. Ég hygg, að þjóðminjavörður hafi sótt annaðhvort um 2 millj. eða 21/2 millj. kr. til þessa verkefnis, og ég tel það algert lágmark þess sem hægt er að ætlast til að unnið verði fyrir á meðan beðið er eftir frekari framkvæmdum í þessu stórmáli. Einnig hygg ég að það væri hægt að fara að ræða um málið við Hafnarfjarðarbæ og tryggja safninu samastað til frambúðar, enda þótt ekki sé um að ræða háar fjárveitingar til að vinna að byggingu safnsins í bili.