04.05.1977
Sameinað þing: 87. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 4304 í B-deild Alþingistíðinda. (3390)

Þinglausnir

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Alþingi, 98. löggjafarþing, lýkur störfum miðvikudaginn 4. maí 1977. Mun ég því slíta Alþingi þann dag.

Gjört í Reykjavík, 3. maí 1977.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Ég óska yður öllum, góðir alþingismenn, velfarnaðar og fjölskyldum yðar. Ég óska þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Geir Hallgrímsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.