16.11.1976
Sameinað þing: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (412)
245. mál, úrbætur í atvinnumálu á Snæfellsnesi
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Fyrirspurn þessari er vafalítið beint til mín sem forsrh. þar sem í þál. um athugun á byggingu og rekstri fiskvinnsluverksmiðju á Snæfellsnesi er skorað á ríkisstj. að láta kanna hvort hagkvæmt sé að byggja og starfrækja slíka verksmiðju. Í þessu sambandi finnst mér ástæða til að vekja athygli á þeirri starfsvenju sem skapast hefur, að slíkar ályktanir eru aldrei sendar frá Alþ. til ríkisstj. sem heildar, heldur eru þær sendar til þess rn. sem að dómi skrifstofu Alþ. fjallar um málefni þau sem ályktað er um.
Sú þál., sem hér um ræðir, var með bréfi, dags. 6. júní 1975, sem undirritað er af Gils Guðmundssyni, 1. varaforseta Sþ., og Friðjóni Sigurðssyni, skrifstofustjóra Alþ., send iðnrn. Ekki verður talið að verkefni það, sem hér um ræðir, falli undir starfssvið iðnrn. Hins vegar er þál. nú nýverið komin til sjútvrn. þar sem hún á heima, og hefur það rn. falið þeim Gylfa Þórðarsyni deildarstjóra og Jóni Reyni Magnússyni framkvæmdastjóra að gera athugun á hagkvæmni fiskvinnsluverksmiðju á Snæfellsnesi og skila rn. skýrslu þar um fyrir 15. des. n.k. Munu þeir hafa samráð við sveitarfélög og fiskvinnsluaðila á utanverðu Snæfellsnesi í sambandi við athugun þessa.