16.11.1976
Sameinað þing: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (413)

245. mál, úrbætur í atvinnumálu á Snæfellsnesi

Fyrirspyrjandi (Jónas Árnason):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans.Ég tek líka undir með sessunaut mínum, hv. þm. Karvel Pálmasyni, sem sagði þegar hæstv. forsrh. lauk máli sínu: „Þetta var lítið.“ En við sjáum hvað setur.

Ég varð fyrir ofurlítilli truflun meðan hæstv. ráðh. var að halda ræðu sína, þannig að ég tók ekki nákvæmlega eftir hvað til stæði. en mér skilst að hinn 15. des. megi vænta einhverrar niðurstöðu af þeirri athugun sem gert er ráð fyrir í þáltill. Ég vona, að sú niðurstaða verði með þeim hætti að snæfellingar geti vel við unað.