17.11.1976
Efri deild: 12. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 657 í B-deild Alþingistíðinda. (447)
31. mál, dagvistarheimili fyrir börn
Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Félmn. hefur tekið til meðferðar frv. það sem hér liggur fyrir um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn. N. fékk á sinn fund Magnús E. Guðjónsson framkvæmdastjóra Landssambands ísl. sveitarfélaga og Svandísi Skúladóttur fulltrúa í menntmrn. Eftir athugun n. mælir hún með samþykkt frv. Steingrímur Hermannsson var fjarverandi afgreiðslu málsins, og einn nm., Helgi F. Seljan, skrifar undir nál. með fyrirvara.
Forsaga þessa máls er sú, að þegar fjárlög fyrir árið 1976 voru afgr. á Alþ. í des. s.l., þá voru nokkrir útgjaldaliðir ríkissjóðs færðir yfir á sveitarsjóði gegn aukinni hlutdeild sveitarsjóða í söluskattstekjum. Einn þessara liða var hlutdeild ríkissjóðs í rekstrarkostnaði dagvistarheimila fyrir börn. Nú þykir nauðsyn bera til að samræma lagaákvæði um dagvistarheimili þessari stefnu, og það frv., sem hér er um að ræða, lýtur að því. Með breyttri greiðslutilhögun var stefnt að því að flytja ákveðin verkefni til sveitarfélaga, en ekki að draga úr framlagi til verkefnanna. Þess vegna er nauðsynlegt að hafa á áfram ákvæði í lögum um rekstrarframlag til dagvistarheimila.
Í frv. er gert ráð fyrir að heildarframlagið haldist innan sömu marka og áður var, en þá greiddu sveitarsjóðir helming rekstrarframlags á móti ríkissjóði, en nú er gert ráð fyrir að sveitarfélögn ein greiði rekstrarframlag, jafnframt því sem þeim verði séð fyrir tekjuauka. Hér er einnig verið að tryggja áframhaldandi stuðning opinberra aðila til rekstrar dagvistarheimila sem rekin eru af öðrum aðilum en sveitarfélögum.
Þessu frv. er ætlað að koma í stað laga nr. 29 frá 1973, um hlutdeild ríkisins í byggingu og rekstri dagvistarheimila. Það má segja að það hefði verið jafneðlilegt að leggja fram frv. um breyt. á þessum lögum eins og að leggja fram frv. um ný lög um þetta efni, en sú ákvörðun hefur að sjálfsögðu verið tekin af menntmrh. eða ríkisstj. sem ber þetta frv. fram. En það kemur í sama stað niður.
Mér þykir rétt að vekja athygli á því, í hverju felst breyt. frá lögum nr. 29 1973.
Þar er þá fyrst til að taka, að í 2. gr. þessa frv. er tekið inn ákvæði gildandi laga um vernd barna og ungmenna um að leyfi menntmrh. þurfi til að stofnsetja dagvistarheimili. Þá er einnig tekið inn í þessa grein ákvæði um að sveitarfélög leggi fram fé til rekstrar dagvistarheimila.
Í 3. gr. felst sú breyt., að inn í gr. er bætt orðunum „og rekstrarstyrks úr sveitarsjóði“. Það er í samræmi við þá stefnu sem frv. markar. Hliðstæð breyt. er gerð við 4. gr. og af sömu ástæðum. Og sama er að segja um breyt. sem felst í 5. gr.
Í 8. gr. stóð áður að af rekstrarkostnaði greiði ríkið til dagheimila og skóladagheimila allt að 30% og til leikskóla allt að 20%. Nú er þessu breytt þannig, að í staðinn fyrir þetta kemur, að af rekstrarkostnaði dagvistarheimila greiði sveitarfélag sem hér segir: 1) Til dagheimila og skóladagheimila allt að 60%. 2) Til leikskóla allt að 40%.
Í samræmi við þessar breyt., sem verið er að gera, fellur svo niður 9. gr. laga nr. 29 frá 1973. Þess skal svo að lokum getið og vakin afhygli á, að með þessu frv. er gerð sú breyt. að talað er um dagvistarheimili, en ekki dagvistunarheimili eins og er í núgildandi lögum. Frv., sem hér liggur fyrir, er um byggingu og rekstur dagvistarheimila fyrir börn. Í samræmi við þetta er í 10.–19. gr. frv. þessu orði: dagvistunarheimili, breytt í: dagvistarheimili. Þetta mun vera vegna málverndarsjónarmiða, og vænti ég þess að enginn hafi við það að athuga. Þessi breyting er ekki frekar en aðrar breytingar, sem ég hef hér lýst, gerð af félmn., þær eru samkv. frv. eins og það var lagt fram.