29.11.1976
Efri deild: 15. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (553)

58. mál, innheimta gjalda með viðauka

Frsm, (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur tekið til athugunar frv. til l. um innheimtu ýmissa gjalda með viðauka. Hér er um það að ræða að innheimta tiltekin gjöld á árinu 1977 með sömu viðaukum og hefur verið á mörgum undanförnum árum, stimpilgjöld, leyfisbréfagjöld og nokkur önnur gjöld. N. mælir samhljóða með því að frv. verði samþ.