02.12.1976
Efri deild: 16. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í B-deild Alþingistíðinda. (619)

95. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta frv. er til staðfestingar á brbl., þau brbl. hafa gegnt sínu hlutverki, tilefni það, sem þau áttu að þjóna, er ekki lengur fyrir hendi, en það er lagt hér fyrir hv. Alþ. af formlegum ástæðum og samkv. boði stjórnarskrárinnar, 28. gr. Ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.