07.12.1976
Sameinað þing: 29. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (672)

249. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég hygg að það skipti ekki öllu máli undir hvaða rn. þessi þáttur heyrir. Aðalatriðið er að fá fjármagn til að framkvæma það sem framkvæma á. Samgrn. hefur leitað eftir því við Siglingamálastofnunina að reyna að framkvæma þetta atriði án aukafjárveitingar ef það tekst ekki að útvega fjárveitingu eins og leitað er eftir, Það mun verða haldið áfram, hvort sem mönnum finnst það skynsamlegt eða ekki að samgrn. fjalli um málið, og reynt að hrinda því í framkvæmd. En það mun reynast mjög erfitt ef ekki eru til fjármunir til þess að greiða þá þjónustu sem þarna verður að inna af hendi.