08.12.1976
Neðri deild: 18. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (727)
78. mál, Iðntæknistofnun Íslands
Flm. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Ég skal segja aðeins örfá orð. Ég er hræddur um að hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason hafi ekki heyrt hvað ég sagði. Ég var að lýsa ástandinu sem upp kom hér á þingi 1974 eftir að einn af stuðningsmönnum ríkisstj., Bjarni Guðnason, sagði skilið við ríkisstj. Þá kom upp þessi staða á þingi og því var lýst yfir í ræðum að það yrði ekki fallist á stjfrv., vegna þess að þau voru Þá háð því að stjórnarandstaðan aðstoðaði við að koma þeim í gegn. Heiftin gegn ríkisstj. var svo mikil að menn lýstu því yfir að þeir mundu snúast gegn málum, þótt þeir væru sammála þeim, til þess að koma ríkisstj. frá. Ég er ekki að lýsa þessu sem neinni almennri stefnu Alþfl. Ég er að lýsa þessu sem fyrirbæri sem kom upp árið 1974 þegar einn af stuðningsmönnum þáv. ríkisstj. hætti að styðja hana.