09.12.1976
Neðri deild: 19. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í B-deild Alþingistíðinda. (742)

12. mál, meðferð opinberra mála

Sighvatur Björgvinsson:

Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að taka það fram að mér líst miklu betur á þessa till. hv. flm. heldur en þá fyrri sem til baka var dregin. Ég tel að þarna hafi hún komið í veg fyrir það að hægt sé að skilja fyrri brtt. hennar á þann veg sem ég lýsti hér við 2. umr. málsins. Ég sé ekkert til fyrirstöðu að styðja þessa brtt. og mun greiða henni atkv.