13.12.1976
Efri deild: 21. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í B-deild Alþingistíðinda. (795)

66. mál, vegalög

Axel Jónsson:

Herra forseti. Ég hef engu við það að bæta sem 1. flm. brtt. sagði. Ég er sammála því að verða við ósk hæstv. samgrh. í þessu efni, í trausti þess að hann tryggi það, sem þarna er farið fram á, með reglugerðarbreytingu. Ég treysti því að svo verði, og þá er tilganginum náð.