15.12.1976
Neðri deild: 23. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1267 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

25. mál, almenn hegningarlög

Frsm. (Ellert B. Schram):

Virðulegi forseti. Frv. þetta hefur hlotið afgreiðslu í hv. Ed. og allshn. þessarar d. mælir með samþykkt frv. eins og það liggur fyrir frá Ed. Frv. samhljóða þessu var flutt á síðasta þingi, en hlaut þá ekki afgreiðslu, en það er líður í endurskoðun almennra hegningarlaga sem hegningarlaganefnd vinnur nú að, og hefur sú n. samið þetta frv. Ég tel ástæðulaust að vera að gera frekari grein fyrir efni frv., það var gert í framsögu hæstv. ráðh., og endurtek aðeins að allshn. er sammála um að frv. verði samþ.