15.12.1976
Sameinað þing: 33. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 1275 í B-deild Alþingistíðinda. (888)

112. mál, landhelgismál

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig að hver þingflokkur fær til umráða 30 mínútur, 15 mínútur í hvorri eða 20 mínútur í fyrri en 10 í síðari. Röð flokkanna verður þessi: Í fyrri umferð: Alþb., Framsfl., Alþfl., Sjálfstfl. og SF. Í síðari umferð Framsfl., Alþfl., Sjálfstfl., SF og Alþb.

Ræðumenn verða þessir: Af hálfu Alþb. tala Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl., í báðum umferðum. Af hálfu Framsfl. tala Einar Ágústsson utanrrh. í fyrri umferð og Þórarinn Þórarinsson, 4. þm. Reykv„ í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. tala Sighvatur Björgvinsson, 8. landsk. þm., í fyrri umferð og Jón Árm. Héðinsson, 1. landsk. þm., í síðari umferð. Af hálfu Sjálfstfl. talar Matthías Bjarnason sjútvrh. í fyrri umferð og Guðmundur H. Garðarsson, 6. landsk. þm., í síðari umferð. Af hálfu SF talar Magnús T. Ólafsson, 3. landsk. þm., í fyrri umferð og Karvel Pálmason, 5. þm. Vestf., í síðari umferð.

Hefst nú umr. og tekur 1. flm., Lúðvík Jósepsson, 2. þm. Austurl., til máls og talar af hálfu Alþb.