16.12.1977
Neðri deild: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1392 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)

113. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Tómas Árnason:

Herra forseti. Ég skal ekki ræða málið, en mig langar aðeins til að spyrjast fyrir um það. því miður fylgdist ég ekki alveg, með framsöguræðu hæstv. iðnrh. um málið, en mig langar til að gera fsp. um það. hvort þessi skipting á verðjöfnunargjaldinu: annars vegar 80% til Rafmagnsveitna ríkisins og hins vegar 20% til Orkubús Vestfjarða. hafi áhrif eða hvaða áhrif hún hafi á rafmagnsverð Rafmagnsveitna ríkisins, — hvort hæstv. ráðh. gæti upplýst þetta.