16.12.1977
Efri deild: 34. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)

129. mál, fjáröflun til vegagerðar

Fjmrh. (Matthías Á Mathiesen):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er lagt fram, er flutt í tengslum við afgreiðslu fjárlagafrv. Með frv. þessu er lögð til nokkur aukning á fjáröflun til vegagerðar, en þó er sú aukning um 300 millj, kr. lægri en gert var ráð fyrir í fjárlagafrv. Hefur verið gerð grein fyrir þessari breytingu í þeim umr. sem fram hafa farið í Sþ. um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

Auk tekjuákvæðanna er að finna í frv, ákvæði sem ætlað er að kveða skýrar á um nokkur atriði er að innheimtu þessara gjalda lúta og ljós ákvæði skortir um í gildandi lögum.

Bensíngjald er nú 23.28 kr. á hvern lítra. Samkv. lagaheimild má nú þegar hækka gjaldið upp í 29 kr, Frv. gerir ráð fyrir að heimild fáist til að bæta 7.50 kr. á hvern lítra umfram 29 kr. Lagt er til, að álagður þungaskattur dísilbifreiða verði hækkaður. Hækkun hans er heldur meiri en hækkun bensingjaldsins og stafar það af því, að gjöld af dísilbifreiðum vilja gjarnan dragast aftur úr gjöldum af bensínknúnum ökutækjum þar sem örðugt er að breyta þungaskattinum jafnhliða breytingum á byggingarvísitölu.

Ákvæði gildandi laga um viðurlög eru gerð skýrari með þessu frv. en verið hefur. Er þá sérstaklega við það miðað að ákvæði um dagsektir fyrir að færa eigi bifreiðar til mælaálesturs verði virk, en að undanförnu hefur dagsektum ekki verið beitt vegna réttaróvissu. Þá er tekið inn í frv. þetta ákvæði um dráttarvexti sambærileg þeim, sem nú eru í lögum um tekjuskatt og eignarskatt og lögum um tekjustofna sveitarfélaga.

Ég leyfi mér, herra forseti, með tilvísun til þess, sem ég hef nú sagt, að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2, umr. og hv, fjh.- og viðskn.