17.12.1977
Efri deild: 37. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1426 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)

87. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka hv. allshn. fyrir afgreiðslu á þessu frv. Ég vil taka það fram og undirstrika, að ekki er gert ráð fyrir að mannafjölgun við embættið leiði af skipun staðgengils rannsóknarlögreglustjóra ríkisins.