19.12.1977
Efri deild: 41. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1162)
98. mál, löndun á loðnu til bræðslu
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég vil í aðalatriðum taka undir þau sjónarmið sem fram komu hjá hv, þm. Jóni Árm. Héðinssyni áðan. Ég tel eðlilegt að binda heimildina, sem um ræðir í lagafrv. til handa þessu sérstaka skipi undir erlendum fána, ákveðnum skilyrðum, ekki bara vegna þeirrar þarfar sem er fyrir það að aflanum úr þessu skipi verði landað á höfnunum nyrðra, þangað sem minnst berst að af hráefni fyrir, heldur líka vegna fordæmisins. Þegar þetta mál hefur verið rætt við míg, og mér er kunnugt um að við fleiri hv. þm. hefur verið rætt, þá hefur það æ fylgt með, að skipstjóri og einn af aðaleigendum skipsins væri tilbúinn að skuldbinda sig til að láta hafnirnar nyrðra sitja í fyrirrúmi um aflann til vinnslu. Ég hef haldið frá upphafi, að ég heyrði að þetta mál yrði reifað hér öðru sinni, að kveðið yrði á um þetta í lögum, einnig með tilliti til þess að hér er verið að veita undanþágu .og í því skyni að skapa sem minnst fordæmi. Hér er um að ræða erlent skip, enda þótt áhöfnin sé innlend og verulegur eignarhluti á nafni Íslendinga.
Ég ítreka það, að ég vildi gjarnan að kveðið væri beinlínis á um það í lagagr., sem fram hefur verið haldið og skipstjóri hefur látið uppi, að hann er tilbúinn til þess að skuldbinda sig til þess að hlíta ákveðnum reglum um meðferð aflans umfram það sem innlendu skipin eiga að hlíta. Og ég vil að það komi fram í lagagr. sjálfri að þetta skip á ekki að njóta sömu réttinda og innlend skip varðandi veiðarnar hér við land eða löndunina, að hér verði kveðið á um undanþágu og komi fram í lagagr. að ætlunin sé ekki að skapa fordæmi með þessum hætti.