19.12.1977
Neðri deild: 40. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)

120. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Ólafur G. Einarsson:

Hæstv. forseti. Í fjarveru frsm. mæli ég hér fyrir áliti félmn. um þetta frv. N. hefur fjallað um frv. á fundi sínum í morgun og leggur eindregið til að það verði samþ.